1.10.2007 | 23:58
Jæhæja bara komin aftur
Heil og sæl kæru vinir, kúasmalinn hér. Loks nennti ég að bíða nógu lengi á þessu blessaða sveitaneti til að geta skrifað hérna inn. Hér í svetinni gengur allt sinn vanagang, mikið búið að vera að gera síðustu vikur og mánuði, byggð var kornhlaða sem tók mest allt sumarið samhliða því að sinna heyskap en núna er kornvertíðin í fullum gangi. Maður er flesta daga í því að þurrka korn eða sjá um fjósið. Ég ætla núna að reyna að vera svolítið aktívari hérna inni og jafnvel setja inn myndir og leyfa ykkur að fylgjast með lífinu í sveitinni. Margt hefur breyst síðan ég skrifaði hér síðast og þá helst held ég að ég hafi breyst mest. Ég er byrjaður í búfræðinámi við landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í fjarnámi og það er mjög spennandi og skemmtilegt nám. Ér í 3 áföngum núna en það er "búvélafræði" (læra um vélarnar sem við notum til að sinna dýrunum), "búfjárrækt 1" (læra um dýrin) og "jarðvegur og nytjajurtir"(læra um það sem dýrin éta) Arna er enn að vinna í SS en er að hætta þar og fljótlega kemur í ljós hvað hún fer að gera. Kara Líf er byrjuð í leikskólanum fyrir hádegi(fljótt að gerast) og fílar sig vel þar. Er ekkert rosa dugleg að byrja að tala en getur þó gert sig skiljanlega, og skilur alveg ótrúlega margt. Hún kom með í réttirnar um dagin og var alveg að fíla að reka rollurnar og sparkaði í þær ef þær vildu ekki fara þangað sem hún vildi láta þær fara. Tina Turner er svo alltaf í góð stuði, orðin 6 mánaða gömul og heldur að hún ráði öllu á heimilinu.
"Heyrumst" fljótt aftur og endilega kommentið til að sína mér að einhver les þetta.
Bloggar | Breytt 2.10.2007 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2006 | 16:49
Gleðileg Jól - Gun Tso Sun Tan'Gung Haw Sun -Glædelig Jul -Merry Christmas - Gledhilig jol og eydnurikt nyggjar!
Verð ekkert að skrifa hér fyrr en eftir jól, en verð þá ferskur í sveitinni ![]()
Óska því öllum sem mig þekkja og líka hinum sem mig ekkert þekkja gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2006 | 09:02
Jó-ólinn
Jæja nú styttist heldur betur í jólin með öllum sínum skemtilegheitum. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn en maður er samt alltaf að leyta að þessari tilfinningu sem maður fann sem barn þegr jólinn voru að nálgast, þessari ofsaspennu sem fullorðið fólk fær sennilega bara með því að fara í fallhlífar- eða teygjustökk þannig að ég verð sennilega bara að skella mér í eitthvað svoleiðis á þorláksmessu til að koma mér í gírinn. Annars er ég og Arna alveg að vera búin með allar jólagjafir og eigum bara eftir að gera jólakortin og senda út á þá erum við tilbúin. Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2006 | 11:40
Seleb
Fór í ræktina í morgun og eins og vanalega í Laugum þá eru alltaf einhverjir frægir einstaklingar að sprikla. Svona til að nefna einhverja sem ég man eftir þá hafa þessir verið einna iðnastir við að mæta:
- Kári Stefánsson
- Mörður Árnason
- Inga Lind sjónvarpskona
- Geir H. Haarde
- Jói Idol
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2006 | 11:22
Allslaus
Ég sit hér á skrifstofunni og tölvukerfið liggur niðri eins og það leggur sig, get ekki skoðað netið, msn, tölvupóst eða sölukerfið og ég er að hugsa um hvernig fólk fór að hér áður fyrr. Hvernig var hægt að lifa án þess að geta hringt í fólk um leið og manni langar að heyra i því, eða sent e-mail í staðin fyrir bréf í pósti sem getur tekið allt frá 3 dögum upp í nokkur ár að berast. Slæmt mál. Mikið er ég fegin að vera upp á þessum tíma en ekki á hippatímanum þar sem ástin sveif yfir vötnum eða pönktímanum þegar frelsið var algert því ég held að eina ástin sem fólk fann á hippatímabilinu hafi verið ást fólks á maríjúana og á pönktímanum var frelsið fólgið í spíttinu. Svo reyndi fólk að breyða yfir ruglið með skrítnum klæðaburð og lét líta út fyrir að það væri að berjast fyrir einhverjum ógurlega mikilvægum málefnum.Ég er líka fegin að vera ekki í framtíðinni því hver veit hvað gerist þegar öll jörðin er orðin svo heit að völdum gróðurhúsaáhrifa að varla finnst vatnssopi á henni. Já það er langbest að lifa í núinu... allavega þangað til núið er orðin framtíðin. Frasi dagsins: Núna er áðan, á eftir er núna og á eftir verður á eftir áðan! Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2006 | 03:19
Ég vil fara....upp í sveit...
Jæja, þá er það staðfest að ég og mín familía erum að flytja búferlum úr höfuðborginni og upp í sveit. Ætlum að byrja á því að vera þar í eitt ár og sjá svo til með framhaldið. Það eru margar ástæður sem liggja að baki þessari ákvörðun sem var ekki auðveld, en mikið verður nú samt gott að losna úr ys og þys "stór"borgarinnar. Og eins og sést á meðfylgjandi mynd er fátt jafn fallegt og eyjafjöllin.
Alveg ótrúlegt hversu mikill munur er á að búa hér eða út á landi, hér þurfa hlutirnir alltaf að gerast svo hratt en samt er maður svo miklu lengur að gera þá. Hef líka tekið eftir því að maður þaf að passa sig ef maður ætlar ekki að verða útúrstressaður af því að búa hér eins og allflestir innfæddir virðast vera. Ég er m.a.s. farinn að pirra mig út í umferðina, blóta bílstjórum sem ekki kunna að gefa stefnuljós eða halda sig á hægu akreinunum, svo ég tali nú ekki um þegar ég missi mig ef einhver flautar á mig. Það eru nú samt margir kostir við borgina sem maður á eftir að sakna þegar maður snýr sér að sveitalubbalífinu og ber þar fyrst að nefna nettengingar sem er fyrir neðan allar hellur upp til sveita og á það eftir að kosta blóð svita og tár að aðlagast gamla innhringiaðganginum aftur með 28 kb/sec.
Svo er það náttúrulega hægara sagt en gert að skreppa í lágvöruverslun til að versla helstu nauðsynjar en það er ótrúlegt til þess að hugsa að engin slík sé alla leið frá Selfossi og austur á Höfn í Hornafirði. Einu verslanirnar sem eru á þessari leið eru hágjaldaverslanirnar Kjarval og fleiri slíkar og þar kostar hver króna tíkall. Þannig að maður neyðist til að fara á Selfoss einusinni í viku til að sækja vistir. Það er ekki einu sinni hægt að versla við kaupmannin á horninu til að mótmæla þjónustuleysi auðmannana sem stjórna verslun á Íslandi því það er löngu búið að aflífa hann.
En hvað með það, ég er hæstánægður með að vera að fara í sveitina og kúpla mig út úr veruleikanum í eitt ár eða svo. Það er reyndar ekki alveg komið á hreint hvar við munum búa, erum með tvo staði í huga eins og er og ég mun láta vita hér um leið og hægt er hvar innflutningspartí verður haldið.
Ef ykkur vantar 2ja herbergja íbúð í Reykjavík, kíkið endilega á þetta
http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=226026
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2006 | 11:14
Fyrsta bloggfærsla
Jæja þá er ég komin með nýtt blogg og ætla mér að koma hér með það sem liggur mér efst í huga hverju sinni. Setti hérna inn góða mynd af dúllunum mínum en hugurinn liggur ansi oft hjá þeim þessa dagana. Er núna að reyna að finna leið til að komast vestur á Ísafjörð með þeim fljótlega en veðrið og vinnan virðast standa í vegi fyrir því. En við deyjum ekki ráðalaus.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
331 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 1419
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Eldri færslur
Tenglar
Aðrir skemtilegir og heimskulegir pennar
Aðrir skemtilegir og heimskulegir pennar
- Vefþjóðviljinn ákveðnar skoðanir
- Þorsteinn J Þorsteinn J
- Heimir Karlsson Heimir Karlsson
- Lára Ómarsdóttir Lára Ómarsdóttir
- Björn Bjarnason Björn Bjarnason
- Björgvin G. Sigurðsson Björgvin G. Sigurðsson
- Björn Ingi Hrafnsson Björn Ingi Hrafnsson
- Dagur B. Eggertsson Dagur B. Eggertsson
- Róbert Marshall Róbert Marshall
- Guðmundur Steingrímsson Einn mest spennandi frambjóðandinn í dag
Fólk
Fólk
- Kolla Crazy ruglaðasta smurbrauðsdama í heimi
- Svanur Yfirkóngur
- Ómar Bonham Útvarpsstjarna
- Maggi kokkur megachef
- Ívar Bjarki Tengill á hrauninu
- Mundi Sveitasnakk
- Biggi Dindill Selfossbúi í húð og hár
Fjölskyldan
Fjölskyldan
- Siggi og Sigga í Heimsreisu Singapore %u2013 Cambodia %u2013 Vietnam %u2013 Laos %u2013 Thailand %u2013 Bali
- Arnar minstibróðir Framtíðar fótboltasnillingur
- Esther mágkona Villingurinn í tengdafjölskyldunni :)
- Þóra Mágkona Snúðaskaffarinn minn :)
- Linda Rut Systir Litla Systir
- Rúnar Bró Litli bróðir
- Arna Lind Ástin mín Ástin mín
- Kara Líf Engillinn minn
Daglegt amstur
Tenglar sem ég nota mest yfir daginn
- Bóndi.is Merkilega fræðandi
- Stjörnuhimininn Stjörnuhimininn
- Vestfirskar fréttir Bæjarins Besta
- Fleiri fréttir af suðurlandi Dagskráin
- Fréttir af Suðurlandi Sunnlenska
- Byggingarvísitala Allt á hreinu
- Símaskráin Já.is
- Morgunblaðið Fréttir
- Vísir visir.is
- Miði.is Miðar á allt sem skiptir máli

